Gesthús Selfoss

Gesthús Selfoss

Gesthús Selfossi er hlýlegur gististaður, í hjarta Selfoss, staðsettur við Engjaveg 56.  Svæðið er umlukið háum trjám sem veita einstaklega gott skjól og friðsælt andrúmsloft. Á svæðinu eru leiksvæði fyrir börn og tveir heitir pottar, staðsettir við þjónustumiðstöðina. Pottarnir eru opnir á opnunartíma þjónustumiðstöðvarinnar, alla daga þegar veður leyfir. Hvernig hljómar að slaka á í heitum potti á meðan norðurljósin dansa fyrir ofan þig?

Við bjóðum upp á tvennskonar gistingu, tvö glæsileg sumarhús og 22 herbergi í smáhýsum, ásamt því að vera með frábært tjaldsvæði.

Smáhýsin okkar kúra í skóginum og eru í hverju að finna uppbúin rúm, eldunaraðstöðu, ísskáp og baðherbergi með sturtu. Fyrir þá sem eru að leita að aðeins meiri lúxus höfum við tvö tveggja herbergja sumarhús til leigu, hvert með fullbúnu eldhúsi, stofu og fallegri verönd með heitum potti sem gestir hafa til einkanota.

Að auki höfum við rúmgott tjaldsvæði og glæsilega tjaldmiðstöð þar sem gestir hafa aðgang að snyrtiaðstöðu, sturtum, eldunaraðstöðu og matsal. Norðan við tjaldmiðstöðina er svo svæði þar sem hægt er að losa úr ferðasalernum og vatnstönkum sem og slanga til að fylla á neysluvatn.

Gesthús Selfoss er fullkomin staður fyrir þá sem vilja kanna Suðurlandið þar sem stutt er í allar helstu náttúruperlur og afþreyingu.
 

Nearby places: